Vellíðan okkar eykst þegar sólin skín. Hún kemur okkur í gott skap og fyllir okkur af orku, rétt eins og henni var ætlað. GH ljós hefur það að markmiði að skapa sömu áhrif fyrir þig með heimalýsingu. Við bjóðum þess vegna upp á sérvaldar lausnir í lýsingu sem kalla sólina inn til þín, því það er aðeins þegar heimilið þitt er búið réttri lýsingu sem þér líður vel og heldur heilsu. Ráðleggingar okkar 11 að réttri lýsingu hjálpa þér að skapa hinar fullkomnu aðstæður.
|
1. Sólgleraugu, nei takk.
|
2. Samsetning af ljósu og dökku
Birta er það sem augu okkar skynja. Hún samanstendur af ljósinu sem ljósgjafinn gefur frá sér og lit efnisins sem við horfum á. Björt herbergi eru sköpuð með því að lýsa upp ljós efni. Þetta þýðir að herbergi virðast björt þegar veggir og loft eru ljós að lit og upplýst. Að lýsa upp dökka gólffleti með því að nota ljós sem beinast niður á við getur t.d. látið sama herbergið virkað dimmt þrátt fyrir mikið ljósmagn. Markmiðið er að dreifa birtunni á samstilltan hátt til að gera herbergin heimilisleg. Bæði björt upplýst svæði á dökkum bakgrunni og herbergi upplýst á einhæfan hátt eru óþægileg ásjónar. Annars vegar eru sterkar andstæður á ljósu og dökku erfiðar og óþægilegar fyrir augun þar sem þau þurfa að aðlagast litamismuninum og þau þreytast fljótt og hins vegar eru herbergi sem eru upplýst á einhæfan hátt leiðigjörn.
3. Magn ljóss
Ljósmagni, sem mælt er í lúxum, á ekki að rugla saman við birtu hugtakið. Ljósmagn þýðir hversu mikið ljós lampi gefur frá sér, en ekki hversu bjart ljósið er. Mikið ljósmagn er ætíð nauðsynlegur þáttur á vinnusvæðum eða þar sem lestur, teikning, handavinna eða heimavinna fer fram og kallar á jafna og góða birtu. Ljósgjafarnir sem við mælum með fyrir hin mismunandi herbergi og svæði eru valin á þann hátt að við tryggjum sem besta birtu fyrir þær aðstæður.
4. Mismunurinn á hlýrri og kaldri birtu
Litur ljóss greinist allt frá kaldri til hlýrrar birtu. Liturinn er ákvarðaður út frá litrófinu og hann getur verið breytilegur eftir tegund lýsingarinnar. Rauður og blár skipta mestu máli. Því meira magn af rauðu í ljósi því hlýrri er birtan og á sama hátt er birtan kaldari eftir því sem meira blátt er í ljósinu. Litur ljóss er mælt í Kelvin gráðum (K°). Kerti = 1,800 °K = mjög mikið magn af rauðum lit í ljósinu = skjallandi, mild birta; glóperu lampi = 2,700 °K = mikið magn af rauðu = hlý og notaleg birta; halógen ljós = 3,000 °K = hátt hlutfall af rauðu = hvít, sterk birta; dagsljós = 6,000-20,000 °K = mikið magn af bláum lit í ljósinu = fersk, náttúruleg birta.
Meira síðar.
Fróðleikur
Bjartasti staðurinn ætti alltaf að vera upplýsti hluturinn sjálfur en ekki ljósið sjálft. Ef þetta er ekki málið þá ertu með glýju í augunum og sjónin þín og vellíðan skerðast töluvert. Til dæmis ætti borðstofulýsing að stuðla að góðri stemningu við matarborðið en ekki blinda matargesti. Hvers konar glampi eða glýja er óásættanleg í skynsömum lýsingarlausnum. Eða hefurðu áhuga á því að ganga um húsið þitt með sólgleraugu?